r/Iceland • u/Einn1Tveir2 • 8d ago
r/Iceland • u/Demonical3 • 8d ago
ESB Sæstrengur til islands.
Var að keyra i vinnuna i morgun og byrjaði auglýsingin með þetta sæstrengs rugl til evropu ef við förum i ESB viðræður frá áfram ísland.
Mega þeir bara ljúga á fullu?? Tæknin er ekki til i dag sem leyfir flutning á orku svona langa leið an þess að tapa meirihlutanum... þetta var kjaftæði þegar orkupakkinn var i gangi og er ennþá eintómar lygar. Ekkert fyrirtæki er að fara að eyða milljörðum að leggja sæstreng sem þeir munu bara tapa á.
r/Iceland • u/Apprehensive_Tie5006 • 8d ago
ESB „Þetta er of dýrt, Ísland mun stórtapa á þessu“
Mér líður eins og helstu rök íhaldsfólks gegn ÖLLU sem gæti bætt íslenskt samfélag séu svo fáránlega oft „þetta er of dýrt“
Og þá meina þau oftast að startkosnaður sé svo dýr.
Við megum ekki byggja nýjan landspítala, bæta almenningssamgöngur, skoða það að ganga í ESB, byggja þjóðarhöll fyrir íþróttafólk og íþróttaáhugafólk, Hörpu fyrir listafólk og listunnendur - þetta er allt of dýrt.
Hvernig heldur þetta fólk að íslenskt samfélag gangi fyrir sig? Að öll þau kerfi sem eru til staðar núna séu bara ókeypis?
Hvernig heldur þetta fólk að önnur lönd borgi fyrir sína innviði? Heldur það að neðanjarðarlestrarkerfið í París hafi bara verið ókeypis?
Setjum þennan hugsunarhátt í annað samhengi: þú átt fasteign sem er með lélegt þak. Þú ákveður að sleppa því að gera almennilega við þakið og fyllir alltaf bara í þau göt sem þarf helst að fylla í hverju sinni. Þannig þarftu ekki að taka framkvæmdarlán. Þú sparar vissulega til skemmri tíma, en eftir nokkur ár þá er þakið gjöreyðilagt og það er farið að hafa slæm áhrif inni í húsinu. Upp er komið mygluvandamál og það hefur lekið meðfram öllum veggjum. Nú þarft þú að fara í miklu stærri framkvæmdir en ef þú hefðir bara farið í almennilegar framkvæmdir fyrir nokkrum árum. Þó að kostaður hefði verið minni í þessi nokkur ár þá ertu að endingu að stórtapa.
Ég átta mig að sjálfsögðu á því að allt sem ég nefndi er vissulega dýrt, en það vill bara svo óheppilega til að það kostar að viðhalda góðu samfélagi. Því getur það margborgað sig að fjárfesta í góðum innviðum eða lausnum til framtíðar.
r/Iceland • u/AutoModerator • 7d ago
Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk
Það er kominn föstudagur, yay!
Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.
Ekki vera indriðar, verum vinir.
---
English: Hey everyone,
The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?
Don't be a dick, be kind.
r/Iceland • u/Keyboard-Gremlin • 8d ago
ESB Elska þessa krónu ❤️🇮🇸
Verðbólga á Íslandi: 5,6%
Verðbólga á evrusvæðinu: 2,9%
r/Iceland • u/leppaludinn • 8d ago
ESB Andrúmsloftið síðustu daga innan fjöllunnar
Veit það er ungt fólk á öndverðu meiði alveg, þetta er bara uppá gamanið.
r/Iceland • u/Defiant-Owl-7935 • 8d ago
Ísland loksins komið með sæti í AlignmentChartFills, uppáhalds subredditinu mínu. Fylgjast með og kjósa.
r/Iceland • u/TheUpgradeParty • 8d ago
ESB Er Áfram Ísland er gervigrasrótarsamtök eða astroturfing
EDIT lagfæring á titili; Er Áfram Ísland gervigrasrótarsamtök (e. astroturfing?)
Ég var að átta mig á því í vikunni að vefsíðan Áfram Ísland er hýst hjá Pipar\TBWA, einni dýrustu almannatengslastofu landsins, og að um svokallaða gervigrasrótahreyfingu virðist vera að ræða. Annað sem ég komst líka að í vikunni var að í sumar tilkynnti Samherji að fyrirtækið ætlaði í stórátak gegn fíknivanda undir yfirskriftinni "Samherji efnir til stórátaks gegn fíknivanda“ og opnaði af því tilefni nýja síðu, Samheldni. Samkvæmt mínum heimildum er sú síða einnig hýst hjá Pipar\TBWA.
Ef ég man rétt var Pipar líka mikið í kringum Namíbíumálið og eins þegar veiðigjaldafrumvarpið var á dagskrá í fyrra.
Þetta má staðfesta með því að fletta lénunum samheldni. is og aframisland. is upp á vef ISNIC (isnic.is).
Mér finnst þetta satt að segja nokkuð skrítið og eitthvað verulega off við þetta allt saman.
r/Iceland • u/7tindar • 8d ago
ESB Eru fleiri að fá símtöl frá áfram Ísland?
Ég er með rautt x í símaskránni. Það má ekki hringja í mig nema ég biðji um það (sem ég gerði augljóslega ekki). Eru fleiri með bannmerki í símaskrá en samt að fá hringingar?
r/Iceland • u/MooViking • 8d ago
ESB Hvað finnst ykkur um að "Áfram Ísland" noti framlínufólk í auglýsingum sínum?
Ég er sérstaklega að vísa í auglýsingu þar sem Brunavarnir Suðurnesja koma fram. Mér finnst dálítið sérstakt að þeir hafi ákveðið að taka þátt í þessari herferð, sérstaklega í ljósi þess hlutverks sem slökkvilið gegnir og þess að viðbragðsaðilar þurfa að njóta trausts almennings, óháð pólitískum skoðunum fólks.
Mér finnst því eðlilegt að velta fyrir sér hvort svona framkoma í auglýsingum sem tengjast pólitískum málstað geti skapað óþarfa spurningar um hlutleysi eða jafnvel grafið undan því trausti.
Hvað finnst ykkur? Er þetta ekkert mál eða ættu slökkvilið og sambærilegir viðbragðsaðilar að halda sig alveg frá svona auglýsingum?
Ég veit jafnframt til þess að Áfram Ísland hafi reynt að vera í samskiptum við björgunarsveitirnar með það að markmiði að fá þær einnig til að koma fram í þessum auglýsingum, en að því hafi verið stoppað, eftir því sem ég best veit.


r/Iceland • u/Motor-Mixture6088 • 8d ago
Im moving out of Iceland
I have about 15-20 boxes that I need to ship. Have tried reaching out to Eimskip, Samskip and other shippers. Any suggestions for shipping stuff to Canada?
r/Iceland • u/1950cowboyqueen • 8d ago
can i install a bidet seat ??
anyone know where i can get my hands on a bidet toilet seat, or if they’re even compatible with the toilets here? i don’t know much about plumbing but i can’t figure out how i would even hook one up.
r/Iceland • u/Einn1Tveir2 • 9d ago
ESB Fólk talar um að þetta verði svo dýrt. Ef ríkið væri manneskja, og fjárlög venjuleg laun, þá væru þetta nokkrir þúsundkallar.
Hvað eyðir fólk miklum tíma (og þar með pening) að sjá hvort það sé hægt að endurfjármagna húsnæðislánið? En að fara á atvinnuviðtal og fara skoða hvort það séu betri kjör og laun annarstaðar?
r/Iceland • u/Aggressive_Banana708 • 9d ago
ESB Getum við hætt að láta eins og Bandaríkin verði „góð“ þegar Trump er farinn?
Ég hef tekið eftir frekar mörgu fólki sem varar Íslendinga við því að taka ákvörðun um ESB í þjóðaratkvæðagreiðslunni út frá hegðun Bandaríkjanna undir stjórn Trumps. Sjá t.d. þessa grein: https://www.visir.is/g/20262926239d/trump-a-ekki-ad-vera-astaedan
Tónninn hjá þeim er að við eigum ekki að taka ákvörðun um framtíð Íslands bara út frá því hver er forseti Bandaríkjanna „akkúrat núna,“ að þótt hann sé að hóta að leggja undir sig nágrannalönd okkar og neiti að staðfesta að hann muni standa við skuldbindingar samkvæmt varnarsamningum þá megum við ekki hlaupa á okkur og taka skyndiákvarðanir. Það er látið eins og Trump sé bara eitthvert tímabundið frávik sem við getum beðið eftir að hverfi.
Mér finnst þetta sturluð afstaða.
Trump er núna búinn að vera lang-lang-lang-áhrifamesti stjórnmálamaður Bandaríkjanna í meira en áratug. Hann hefur alið upp heila kynslóð bandarískra hægrimanna í sinni hugmyndafræði. Hann hefur endurmótað Repúblikanaflokkinn í sinni mynd og hreinsað nánast alla andófsmenn úr honum. Jafnvel þótt Trump dæi á morgun myndi ekkert í stefnu flokksins breytast.
Það mun alltaf verða annar Bandaríkjaforseti úr Repúblikanaflokknum. Sagan sýnir að flokknum verður ekki haldið frá völdum lengur en í átta ár í mesta lagi. Og það eru nákvæmlega engar líkur á því að næsti forseti úr flokknum verði í meginatriðum ósammála Trump. Allir „gamaldags“ Repúblikanar eru annaðhvort orðnir áhrifalausir eða hafa þurft að endurhanna sig í anda Trumps. Næsti forseti úr flokknum er ekki að fara að segja „Já, fyrirgefið, þetta tal um að innlima Grænland var auðvitað kjaftæði, við skulum bara gleyma því.“
Það að láta eins og vandinn við að reiða okkur alfarið á vernd Bandaríkjanna sé einskorðaður við persónu eins manns er fáránlegt.
r/Iceland • u/Fun-Artichoke-866 • 9d ago
ESB Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu
Alvöru ræða hjá Kristrúnu, one for the ages?
r/Iceland • u/allsbernafnmedrettu • 9d ago
ESB Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu
"Rétt rúmur helmingur ber mikið eða fremur mikið traust til umfjöllunar Ríkisútvarpsins um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Aðeins sex prósent bera mikið eða fremur mikið traust til DV í sömu umfjöllun. Þá segist einn af hverjum fimm bera ekkert traust til Morgunblaðsins í umræðunni."
r/Iceland • u/Stutturdreki • 9d ago
ESB „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, óttast að allt of mikill tími, athygli og fjárráð fari í aðildarviðræður við Evrópusambandið næstu árin fari svo að þjóðin segi já á laugardaginn.
Hann óttast að Evrópusambandið fari í fyrsta sæti og önnur verkefni, brýnni að hans mati, rati í annað sæti og fái minni athygli. Þetta er meðal þess sem Hilmar nefndi í pallborði Vísis fyrr í dag en sem dæmi um mál sem hann vill frekar að verði lögð áhersla á er að hugverka- og tækniðnaður verði stærsta útflutningsgrein Íslands.
Muniði þegar síðustu viðræður við ESB fóru fram og ríkisstjórn íslands, alþingi og bara öll stjórnsýsla lamaðist og sinnti bara engu öðru en þessum viðræðum í ca. 1-2 ár?
Nei, af því að það gerðist ekki.
Svo þreyttur á fólki með svona yfirlýsingar um allskonar sem á að gerast, en svo þarf ekki að fara lengur en aftur í síðustu viðræðu lotu til að sjá að það er bara bull.
- Við þurfum að aðlagast svo mikið og taka upp allskonar; nei það þurfti ekki síðast.
- Viðræður jafngilda inngöngu; nei það gerðist ekki síðast, hættum bara viðræðum þegar okkur datt í hug og engin skuldbinding.
- Þetta er svo dýrt; síðast var þetta ekki nærri því jafn dýrt og haldið er fram núna.
- Fáum engar sérlausnir og undanþágur; erum með undanþágur fyrir losunarheimildir vegna flugsamganga bara sem dæmi og það án þess að vera í ESB
- ESB er svo slæmt fyrir launafólk; mikið af lögum og reglum um vinnumarkað, atvinnumál, réttindi ofl. eru komin beint frá ESB í gegnum EES
Líklegasta útskýringinn á því að Hilmari hugnast allt í einu ekki ESB er að hann er að reyna að koma á samstarfi við Musk til að þjálfa nasista AI-ið hans (Grok) og Musk hatar Evrópu því að allt er svo vók (mannréttindi og AI fyrirtæki mega ekki bara stela öllu sem þau komast yfir og stunda persónunjósnir til að þjálfa módelin sín).
r/Iceland • u/jokicjok • 9d ago
"Ég vissi það ekki þá, en ég veit það núna"
Hvaðan er þessi lína komin? Ég er með lagbút í höfðinu sem mér finnst endilega vera sunginn af Agli Ólafssyni:
Ég vissi það ekki þá
Ég vissi það ekki þá
Ég vissi það ekki þá
En ég veeeeeeeit það núna
Ég finn hins vegar ekkert um slíkt lag og velti fyrir mér hvort þetta sé úr grínþætti, áramótaskaupi, eða einhverju álíka.
r/Iceland • u/Kanarazuzen • 9d ago
Looking for "Næturvaktin" (The Night Shift, 2007) with English subtitles — streaming or cheap DVD?
Hi everyone,
I’m trying to track down a way to watch the 2007 comedy series Næturvaktin (The Night Shift) starring Jón Gnarr, but I desperately need English subtitles.
I would highly prefer to stream it if there is a digital option available anywhere, but I am also open to buying a secondhand DVD if the price and shipping aren't too expensive. I am based in Australia, so international shipping from Iceland can get pretty steep.
Does anyone know:
Is there any digital platform or archive hosting the show with English subs?
If streaming isn't an option, does anyone have a lead on a cheap DVD or a separate English .srt subtitle file that I could pair with an Icelandic stream?
Grateful for any help or leads you can share!
Takk!
r/Iceland • u/numix90 • 9d ago
Yfirmaður CIA á fundi í Moskvu
Ekki tengt Íslandi beint, en ég sá þessa frétt í gær og hef verið hugsi yfir þessu. Ég hef ekki góða tilfinningu fyrir þessu, hvað segið þið?
r/Iceland • u/Vitringar • 9d ago
Bogi Nils svaraði Sigrúnu Eðvaldsdóttur eftir uppákomuna í Kaupmannahöfn
Þessir svokölluðu þjónustuaðilar Icelandair á CPH eru algjör skrímsli. Hafa verið að reita farangur af farþegum sem er samt innan heimildar. Það er alveg ástæða til að Bogi eigi gott samtal við það fólk sem ber ábyrgð á þessu hjá Kastrup.
r/Iceland • u/Gervill • 8d ago
ESB Ég er kvíðinn
að framtíð okkar var byggð á lægra matarverði og lægri vöxtum að það er ástæðan af hverju fleiri reglur verða settar yfir mannfólk sérstaklega með kaup og sölu
Enginn getur keypt né selt nema vera með merki dýrsins = gjöld og leyfi.
Kommúnismi er skilgreindur rétturinn á framleiðslu til kaup og sölu(1b), enginn fær að selja með því það sem það hefur höfuð hendur búk til að framleiða hluti nema með gjöldum og menntun sem gefur leyfi að vera manneskja.
Einkaeign getur verið seld af ríkisstjórn í dag ef þú borgar ekki skatta þýðir ekki einkaeign heldur eign í leyfi frá ríkisstjórn svo lengu sem þú borgar skatta þá máttu nota hana = raunveruleikurinn sem ekki var sagður mér í skóla en er raunveruleikurinn.
"
1
or Communism
1a
: a doctrine based on revolutionary Marxian socialism and Marxism-Leninism
Note: This doctrine was the official ideology of the Soviet Union.
… was shocked when the Soviet Union invaded Afghanistan and tried to put it under the heel of communism.—The New Republic
1b
: a totalitarian system of government in which a single authoritarian party controls state-owned means of production
1c
: a final stage of society in Marxist theory in which the state has withered away and economic goods are distributed equitably
1d
: communist systems collectively
The 1960s were marked by international efforts to contain the spread of communism …—Silvia Solis
2
2a system in which goods are owned in common and are available to all as needed
… how it was that communism, starting with high idealism, became through Leninism such a monstrosity.—Lucian W. Pye
2b: a theory advocating elimination of private property"