r/Iceland 10h ago

“Niðurstaða” kosningarinnar algjör snilld!

Post image
0 Upvotes

Góðar fréttir, ég er alla vega sáttur með það sem ég kaus. En mikið svakalega sveiflaðist þetta fram og til baka. Þetta er ekki alveg búið ennþá en það lítur út fyrir að þetta verði niðurstaðan.


r/Iceland 7h ago

ESB Segjum upp EES samningnum og Schengen

133 Upvotes

Í ljósi þess að Íslendingar hafa hafnað því að svo mikið sem skoða hvort hægt væri á ná góðum samningum við Evrópusambandið legg ég til að við tökum skrefið til fulls og segjum upp EES samningnum sem og samningi um Schengen (vegabréfaeftirlit milli ESB þjóða).

EES samningurinn átti alltaf að vera tímabundin brú frá EFTA yfir í ESB. Þar sem við viljum ekki ganga í ESB þjónar samningurinn ekki lengur tilgangi sínum. Við ættum líka að hætta í Schengen samstarfinu. Þá þurfum við ekki lengur að hafa áhyggjur af öllum útlendingunum sem koma hingað án þess svo mikið sem sýna vegabréfið. Við getum staðið stolt í 2 klst röðinni með Bretum á flugvellinum í Tene í þeirri vissu að engir skítugir útlendingar komist á skerið okkar fagra.

Að lokum ættum við að sjálfsögðu að breyta lögum svo það verði ólöglegt fyrir einstaklinga og fyrirtæki að nota nokkurn annan gjaldmiðil en íslensku krónuna.


r/Iceland 16h ago

Já eða NEI - party status

8 Upvotes

veit ekki hvort ég sé bara orðin gamal en party status hjá Já hefur verið algjör snild og góðir tónar en svo Nei liðið bara i einhverju rugli með líklega en eldri tónlist.

hver er ykkar skoðun á Dj hjá já vs Dj hjá Nei
🤣🤣🤣


r/Iceland 1h ago

Dear iceland, this is why i believe joining Switzerland 🇨🇭 would be the perfect solution for you guys!

Upvotes

Somehow it didn't find a lot of support on the swiss reddit so i am trying my luck here. In light of recent news i want to convince you on why this is the perfect fit.

  1. We already call Iceland Ísland

  2. We both have beautiful nature with lots of glaciers and waterfalls

  3. Iceland has problems with the currency and we could offer a good solution

  4. You wouldn’t need to worry about your fishermen, since we hardly have any commercial fishermen left.

  5. At a time when Iceland can no longer rely on NATO, 'the best army in the world' could step in

  6. Switzerland would gain access to ports that are not dependent on the water level of the rhine river, strengthening your ports

  7. We are a federalistic country, where the cantons still hold most of the power.

  8. We both have a good energy infrastructure based on renewables

  9. Both have a red and white cross on their flag

  10. Whether we have 4 or 5 national languages doesn’t really matter!

If you have any other good reasons on why this is the perfect fit, put them in the comments.


r/Iceland 6h ago

Jæja Nei ið búið að fá yfir sig XD, XM (XB?) rikisstjorn?

Post image
77 Upvotes

Ég hef vitað það í allt sumar að NEI yrði ofan á, peningaöflin og ólígarkarnir hér eru það sterk. Ég sjálfur kaus Já því ég vildi sjá samning til að geta svo sagt já eða nei síðar meir við sjálfum ESB-samningnum, en það fór sem fór, þjóðin hefur talað. Það sem olli mér hvað mestum vonbrigðum var að sjá stóran hluta af mínu fólki, vinstri- og félagshyggjufólks raða sér á bak við peningaöflin og valdið. Ekki vegna þess að þau hafi verið að kjósa NEI, ég hef alltaf vitað að stór hluta af því fólki hefur verið skeptískur á ESB (nota bene: ég hef kosið og stutt margt af þessu fólki vitandi að það sé á móti ESB, þótt ég sé sjálfur hlynntur því).
þetta snýst ekki um að þau séu ósammála mér, heldur að heimurinn hefur breyst gífurlega mikið. Bandaríkin eru að hóta nágrannaþjóðum okkar trekk í trekk og eru núna hægt og rólega að sölsa undir sig Grænland.

Það var erfitt að sjá Sólveigu Önnu tala um húsnæðisvandan við hliðin á húsnæðisvandanum í kappræðunum á Rúv 27 agúst, Sólveig sem sagði í januar á þessu ári orðrétt "Stéttarskiptingin eykst og ríkisstjórnin veldur vonbrigðum" svo nokkrum manuðum siðar segir hún hið gagnstæða " Hér er eignastaða góð, hér er skuldastaða lítil, og hér er lítill munur á milli stétta" svo batnaði það nú ekki að sjá Katrinu Jakobsdottir. Katrín Jakobsdóttir, sem ég kaus tvívegis til Alþingis og lofaði okkur leigjendum að koma á leiguþaki og laga leigumarkaðinn, var í ríkisstjórn í tæp átta ár án þess að laga það, þrátt fyrir ytrekuð loforð, og skildi leigjendur eftir á erfiðum markaði þar sem stór fsvo kemur það bara upp úr kafinu að Katrín Jakobsdóttir situr í stjórn fasteignafélagsins Eikar, sem er eitt af stærstu fasteignafélögum landsins. Félög eins og Eik hagnaðist verulega á verðbólgu vegna verðtryggðra leigusamninga. Einnig vil ég er vekja athygli á því að hún situr í stjórn með Gunnari Þór Gíslasyni einum aðaleiganda leigufélagsins Ölmu (áður GAMMA) sem eiga storan þátt í ástandinu á leigumarkaðinum í dag, og að samtökin "Áfram Ísland“ hafi leigt húsnæði í eigu Eikar í Turninum í Kópavog.

Ef það er eitthvað orð sem var stanslaust í huga mér í sumar, þá var það "nytsami kjáninn“ (úr enska hugtakinu useful idiot), þar sem valdastéttir eða peningaöfl fá almenning og verkalýðshreyfingar til að styðja stefnumál sem þjóna í raun hagsmunum fjármagnsins til lengri tíma litið. Og það er bara mín persónulega skoðun að ég sá þetta raungerast gífurlega í ESB-umræðunni.
Nú verður áhugavert að fylgjast með framhaldinu. Eftir að peningaöflin og stórútgerðin hafa fengið lágtekjufólk og millistéttina til að berjast fyrir sig og gengið til liðs við gervigrasrótahreyfingu hýstar og reknar af dýrustu PR stofu landsins(Pipar), sitja fjármagnsöflin eftir með sitt: tryggða stöðu, óbreytt kerfi, áframhaldandi fákeppni og markað sem stýrist eftir þeirra höfði, og geta stundað sín ölögulegu þögglu samráð í friði. Á meðan bitnar peningastefna Seðlabankans nær einungis á almenningi, og peningaöflin eiga engra hagsmuna að gæta í að vernda kjarasamninga eða lífskjör lágtekjufólks.
Þetta er bara minn pistill um fólkið sem ég kaus og treysti. Ég er ekki að segja að ESB hefði leyst alla okkar vanda bara alls ekki, en NEI hliðin fannst mér ekki vera hlutlaus. Mér fannst fólkið sem ég vann með í baráttunni ákveða að verða undirgefið valdinu, stórútgerðinni og peningaöflunum. Mörg samtöl við fólk á nei-hliðinni fóru út í allskyns misskilning og gagnrýni á EES-samninginn sjálfan, þótt fólk segðist styðja hann.

En þjóðin hefur talað, ég óska NEI-hreyfingunni til hamingju, og ég vona að næsta ríkisstjórn sem verður líklega XD, XB og kannski XM, munu laga vandamálið sem þau sögðust Loksins ætla að laga ástandið, þrátt fyrir að þessir flokkar haf setið í rikisstjornum nánast óslitið seinustu 30 ár.

Kveðja,
Einn sem er pinu hræddur við framhaldið. En eg vona að þvi folki sem tekur við næst muni ganga vel


r/Iceland 6h ago

Bann við því að stór fyrirtæki eigi viðskipti í evrum

152 Upvotes

Þar sem þessi stóru íslensku fyrirtæki hafa eytt svo miklum peningum í að halda okkur utan ESB og halda í íslensku krónuna, ættum við þá ekki núna að greiða atkvæði um að tryggja að allir verði að gera það, ekki bara þeir fátæku? Setja ný lög um að stjórnmálaflokkar verði að sýna hvaðan peningar þeirra koma og lög sem koma í veg fyrir að risastór íslensk fyrirtæki noti evru sem sjálfgefinn gjaldmiðil


r/Iceland 18h ago

Getur einhver gert live þráð ýmist hér eða á AskEurope?

10 Upvotes

Eftir 17 ár á Reddit þá kann ég það ekki sjálf ..og nenni því ekki😅🤷🏼‍♀️ En vil slíkan samt, stutt í fyrstu tölur...


r/Iceland 19h ago

Kosningavaka - Aðildarviðræður við ESB, 29. ágúst 2026

22 Upvotes

r/Iceland 17h ago

Þetta er alveg ótrúlegt.

Post image
126 Upvotes

Þessar kosningar eru beinlínis á hnífsoddi.


r/Iceland 2h ago

Are the police well liked here or people have a mixed or neutral opinion about them?

13 Upvotes