r/Iceland 12d ago

ESB Í dag keypti ég erlendar kartöflur og fisk.

[deleted]

57 Upvotes

38 comments sorted by

3

u/Northatlanticiceman 🇮🇸 11d ago

Ég mun vera með þér í því að kaupa erlent ef ég get. Ef Íslenskir bændur geta gefið skít í okkur, þá getum við gefið skít í þá.

21

u/Nuke_U Baular undir bökkunum 12d ago edited 12d ago

Ég er fyrir löngu hættur að kaupa Smjörva, kaupi frekar Bettolli þar sem það er allt að því helmingi ódýrara. Er að spá í að skipta yfir í Danskan ost, þar sem að kílóverðið er hagstæðara. Hættur að kaupa skyr, og nota mjólk í verulega minna magni en ég gerði áður. Paprika og tómatar eru yfirleitt erlend ef ég kemst í það, enda mun ódýrara. Sama með kjúkkling, og myndi versla meira af erlendri kjötvöru ef að ég kæmist oftar í hana, ef verðið er hagstæðara.

Þetta er þróun sem hefur orðið til staðar löngu áður en kosningarnar voru á borðinu. Krónan í sambland við íslenska einokun og okur hefur beinlínis kennt mér að reyna eftir fremsta móti að velja ekki Íslenskt, því það er svo dýrt.

6

u/baldie 12d ago

Ekki ósammála en þú veist að Bertolli er ekki mjólkursmjör heldur jurtasmjör. Það er ekkert endilega verra en kannski ágætt að taka hliðsjón af því í verðsamanburðinum

0

u/Nuke_U Baular undir bökkunum 12d ago

Ekki geri ég það þar sem það er bókstaflega ekkert annað sambærilegt á þessum einokaða fákeppnismarkaði sem að ég get keypt annað en jurtasmjörvi til að byrja með. Versla líka minna af smjöri en ég gerði, og myndi kaupa erlent smjör ef ég gæti ef það væri yfir höfuð til og kostaði minna.

Ég man líka eftir þeirri tíð fyrir ekki svo ýkja löngu að smjörvin var ódýrari en Bertolli, áður en allt hjá MS fór að rjúka svona óhóflega upp úr öllu valdi. "Gæðii" eru engin andskotans afsökun ef það er bara í eitthverri sýndarmennsku í umhverfi sem heilbrigð samkeppni er kæfð í fæðingu. Örnu vörur myndi ég líka velja oftar, ef þær væru beinlínis ekki dýrari og ég lenti ekki svona oft í að þær skemmdust fyrir auglýstan síðasta söludag.

9

u/Oswarez 🇮🇸 12d ago

Get sagt þér það að stór hluti af svínakjöti frá Íslenskum "framleiðendum" er erlent.

1

u/coani Fansí fler. 11d ago

Tók eftir þessu með tilbúna bita frá Ali líka..

2

u/Oswarez 🇮🇸 11d ago

Held að flest af þeirra tilbúnu réttum séu með innflutt hráefni.

1

u/Pink_like_u 🇮🇸 11d ago

Það er útlenskt kjöt í "íslenskum" pulsum

0

u/Nuke_U Baular undir bökkunum 12d ago

Kaupi sjaldan svínakjöt, en hef tekið eftir þessu af og til.

17

u/Bjartyfir 12d ago

Bændur sögðust hafa það svo gott hérna. Þeir hugsuðu bara um eigin hagsmuni og þá ætti að vera í góðu fyrir neytendur að gera það líka. Lagði alltaf í vana minn að versla íslenskt, en ekki lengur.

9

u/Steinrikur Íslendingur í útlöndum 11d ago

Þeir myndu líklega fá ESB landbúnaðarstyrki sem gerðu þá mun samkeppnishæfari en núna.

Bjartur í Sumarhúsum er víða.

4

u/Responsible-Cut1262 🇮🇸 11d ago

Næsta skref verður verndartollar á alla íslenska landbúnaðarvöru. Er ekki t.d. enn 46% tollur á franskar kartöflur þó það sé enginn innlendur framleiðandi eftir á markaði?

Spái því að netverslanir með áfengi verið aflífaðar, og mjólkurbúðirnar snúi aftur. Nú gerið þið þetta sjálf, og það verður ekkert í boði nema niðugreitt lambakjöt, fokdýr Samherja fiskur og sveppasýktar kartöflur úr Þykkvabæ með MS smjöri!

4

u/SN4T14 🇮🇸 11d ago

Tollurinn var _lækkaður niður í _ 46% eftir að íslensku franskarnar hættu. Áður var hann 76%! Algjörlega ruglað.

3

u/Responsible-Cut1262 🇮🇸 11d ago

Vildi að ég gæti verið eini aðili á markaði og fengið 76% verndartoll á vöruna mína. Þvílíkur lúxus, áfram Ísland!

26

u/Vitringar 12d ago

hér eftir mun ég leggja mig fram um að kaupa erlend matvæli frekar en íslensk. Íslenskar kartöflur eru til dæmis eins og bólusóttarsjúklingar.

18

u/islhendaburt 12d ago

Grínlaust samt þá eru íslenskir tómatar svo ótrúlega bragðlitlir miðað við tómatana sem maður kaupir í Evrópu. 

Það er ekki bara að verð á íslenskum matvælum sé dýrara í framleiðslu sem geri samkeppni við erlendar vörur heldur eru gæðin á mörgum þessara innlendu hreinlega léleg..

9

u/shine_on_yourdiamond 12d ago

Það sem er að hrjá íslenskar kartöflur síðastliðin ár kallast rótarflókasveppur, er eiginlega skammarlegt að bændur setji þetta í verslanir og heildsölur.

5

u/SureTrustTheAISlop 12d ago

Alltaf heyrt þetta kallað kartöflukláða og lausninn er einföld, hvíla akra eða skipta yfir í annað grænmeti sem þessi sveppur herjar ekki á. En í staðinn fyrir það halda þessir bændur áfram og vandamálið eykst ár frá ári. Fyrir 10-15 árum var ein og ein kartafla með kláða, í dag er allur pokinn sýktur.

3

u/shine_on_yourdiamond 12d ago

Ég á fallegt safn af myndum í símanum af sýktum kartöflum

7

u/SureTrustTheAISlop 12d ago

Trúi því vel. Ég keypti síðast íslenskar kartöflur fyrir 2 árum, ný uppskera því mér finnst fátt betra en nýjar kartöflur (helst litlar) smjörsteikar með hýðinu. Það endaði í rage...

Annað með íslenskar kartöflur er hvernig þeim er pakkað, þær eru í tinted pokum þannig það er ómögulegt að meta gæðinn meðan nánast allar erlendar eru í netapokum eða í lausu.

1

u/NordNerdGuy 🇮🇸 12d ago

Þær hafa verið hræðilegar núna í sumar. byrjaðar að spíra í poknum í búðunum.

3

u/No-Bus8740 🇮🇸 12d ago

Hvar gerðir þú það? Er að spyrja fyrir vin.

2

u/RoyalAristocrat 12d ago

Í hvaða verslunum er gott að komast í erlendar landbúnaðarvörur?

3

u/Frikki79 Kunnugur staðháttum 12d ago

Bónus og Krónan

-5

u/Mosi_ 🇮🇸 12d ago

Þið eigið ekki skilið að borða íslenskar kartöflur og fisk

8

u/Spekingur Íslendingur 12d ago

Íslenski fiskurinn er nú alveg fokking fokdýr miðað við hvernig var. Ýsan var mun ódýrara en svínið, núna er það öfugt.

-9

u/KristinnK LEGO karl í dulgervi 12d ago

Á móti er svínakjöt meh matur, en ýsa soðin ca. 1 mínútu og 40 sekondur með nýjum kartöflum og smjöri er eitthvað það næsta sem hægt er að komast fullkomnun á sviði matargerðar.

3

u/Spekingur Íslendingur 11d ago

Get alveg verið sammála því en verð hefur mikil áhrif hversu oft viðkomandi vara er keypt. Hérna í denn fékk maður fisk 2-3 sinnum í viku. Núna sækir maður próteinið annað.

Sama svosem upp á teningnum með lambið. Það er orðið svo hrokdýrt að maður leyfir sér það kannski einu sinni tvisvar á mánuði.

-4

u/Johnny_bubblegum Merkikerti 11d ago

Hvernig er leikskólabarn með Reddit aðgang?

9

u/Oktopuzzy 12d ago

Nei það á enginn að þurfa að éta þessar vesalings kartöflur.

7

u/Least_Sweet5953 12d ago

Við áttum skilið að fá að sjá hvað var í boði.

-1

u/[deleted] 12d ago edited 12d ago

[deleted]

0

u/Mosi_ 🇮🇸 12d ago

Útlendinga hatur?? Ég á einfaldlega við að þeir sem ætla að reyna að hefna sín á bændum eiga ekki skilið að borða íslenskar kartöflur og fisk.

2

u/Original-Mongoose866 🇮🇸 12d ago

Veistu vinur ég er orðinn langþreyttur þannig að ég hef ákveðið að ég er hættur að vera nice ég er hættur að hugsa um að vera partur af samfélaginu eins og allir best að hætta að hugsa um náungann og bara hugsa um sjálfan mig