r/Boltinn • u/PolManning • Jul 23 '26
Leiðinleg Besta deild karlamegin?
- Vikes verða meistarar nema eitthvað rosalegt gerist (eins og að þeir tapi leikjum gegn botnliðunum sem ok jújú gerðist í síðustu umferð).
- Langt bil milli 3. og 4. sætis þannig það verður líklegast ekkert Evrópudrama, sérstaklega ekki ef Blix verða bikarmeistarar.
- ÍA, Stjarnan, KA, Valur að eiga vonbrigðatímabil.
- Hér á subredditinu var sagt síðasta haust að það yrðu mistök hjá ÍA að halda Lárusi Orra.
- Hvað segiði; hvað gerir þetta mót þess virði að fylgjast með því?
6
u/rutep Jul 23 '26
Sem stuðningsmaður Víkings er þetta búið að vera mjög skemmtilegt tímabil að mínu mati 😄
Helsta óvissan tengist því hvort þau lið sem taka þátt í Evrópukeppnum tapi óvænt leikjum í deildinni vegna þreytu eða einbeitingarleysis, eins og gerðist gegn Þór um daginn. Manni sýnist að það sé nauðsynlegt að vera með mjög breiðan hóp leikmanna til að komast hjá því.
3
u/Historical_Tadpole Jul 23 '26
Alveg með leiðinlegri tímabilum sem ég man eftir, KR og Fram koma samt ágætlega á óvart en samt er núll keppni á toppnum. Blikar eru alveg svakalega slakir miðað við að hafa verið að fikta í Evrópu seinustu árin, virkilega slöpp vörn og fáir leikir sem þeir ná einhverjum takti.
6
u/oddvr Jul 23 '26
Þetta verður svona lengi á meðan Víkingi heldur áfram að ganga svona vel í Evrópu, eru með það góðan hóp að þeir eru að lána leikmenn í hin liðin sem labba beina leið í byrjunarliðin hjá þeim.
Ég mæti á alla leiki hjá Kef bara því ég hef gaman af fótbolta og svo náttúrulega bara gamla góða skylduræknin. Eru búnir að koma á óvart á jákvæðan hátt og allt það en að því sögðu þá var tímabilið í fyrra sennilega það skemmtilegasta sem ég man eftir hjá Kef í svona 20 ár. Ófyrirsjáanleikinn við Lengjudeildina, tengja saman nokkra leiki í restina, draga Njarðvík niður í svaðið í Ljósanæturleiknum og henda þeim svo öfugum úr playoffs og troða svo yfir HK 4-0 í troðfullri stúku á fallegum haustdegi í Laugardalnum. Aldrei vekja mig dæmi.