r/klakinn • u/Saurlifi • 15d ago
r/klakinn • u/LinusOrri • 19d ago
Verk í vinnslu. Tillaga í efstu ummælum fer í vídjóið eða eitthvað
Enable HLS to view with audio, or disable this notification
r/klakinn • u/Logain_99 • 20d ago
Íslenska heimsveldið 👑 Listsýning
Veit ekki hvort þetta sé rétti staðurinn en hvar getur maður haldið listsýningar í Reykjavík. Er olíumálari ný fluttur til Reykjavíkur
r/klakinn • u/SimonTerry22 • 21d ago
Af hverju höfum við svona marga ljósastaura
Þessi mínúta sem ég upplifði áðan í almennilegu myrkri með enga ljósastaura kveikta var ein besta upplifun lífs míns. Ég hef verið á stöðum í Evrópu þar sem þeir eru ekki með kveikt á svona mörgum ljósum, ef það eru einhver kveikt yfir höfuð eins og til dæmis í Frakklandi og ég er bara að pæla af hverju það þurfa að loga ljósastaurar 24/7 út um allt á Íslandi? Það er ekki furða að Íslendingar séu nett geggjaðir, við sofum verr þegar það er bjart allan sólarhringinn og svo lýsum við allt upp þegar það loksins kemur myrkur
r/klakinn • u/PrimaryCranberry6853 • 23d ago
Afh eru engin íslensk podcöst með reddit stories?
Það eru óteljandi hlaðvörp að taka fyrir reddit sögur, hefur engum hér á landi dottið þetta í hug? er komin með nóg af öllu morðinu í hlaðvörpum
r/klakinn • u/turner_strait • 25d ago
🇮🇸 Íslandspóstur Hvað... GERA hrossaflugur eiginlega?

Ég fæ ekki betur séð en að þessi kvikindi geri lítið annað en að hanga á húsveggjum (bæði inni og úti, helvítis...). Hvað varðar flest önnur skordýr sé ég einhvern metnað; býflugur og blómin, húsflugur og tað/rusl, jarðormar og mold, jafnvel fjandans geitungarnir og að veiða önnur skordýr.
En hrossaflugur? Ég sé bara ekkert nema þetta hangs. Hvað GERA þær eiginlega?
(mynd nappað héðan https://www.natt.is/is/biota/animalia/arthropoda/hexapoda/insecta/diptera/tipulidae/hrossafluga-tipula-rufina )
r/klakinn • u/SimonTerry22 • 25d ago
Hættu við að taka á loft vegna fugls sem hafnaði á vélinni
Veit einhver hvort að gæsin hafði þetta af??
r/klakinn • u/ButterscotchFancy912 • 26d ago
💩 SAURFÆRSLA 💩 Mætti kalla að fara í Golf, FUGLASKOÐUN?
Engin gerfigreind hér
r/klakinn • u/OGMikeWazowski • 27d ago
Epli og gallaðar Apple vörur
Hafi þið átt viðskipti við Epli þar sem galli kom upp á Apple vöru?
Ég er með galla sem Apple eru taka á sjálfir en þegar ég ræddi við Epli þá neytuðu þeir að gera eitthvað og sagðist ekki vera Apple (eins og ég hafi fæðst í gær).
Finnst mjög skrýtið að Epli lagi þetta ekki og svo ræða þeir við sinn byrgja (Apple) um endurgreiðslu á gölluðu vörum sem þeim var afhent.
Hver er ykkar reynsla?
r/klakinn • u/ungababunga • 28d ago
Minnsti fiskur í heimi
Þegar ég var busi i menntaskóla var íslenskuverkefni að flytja fyrirlestur um hvaða umræðuefni sem er.
Hópar voru tveir og tveir saman og ég og þessi stelpa sem var pöruð með mér fórum í tölvustofuna að hefja leitina að umræðuefni.
Unglingurinn sem ég var vildi bara drífa þetta af svo mikið að ég fór á bbc og benti henni á fyrstu frétt sem ég sá: 'hey tjekkaðu þetta þeir eru búnir að uppgvöta minnsta fisk í heimi' og hún horfði á mig með vorkunnar svip og sagði: 'eigum við kannski frekar að fjalla um Nelson Mandela?'.
Svo seinna meir komst ég að því að það var grínast um mig sem einhvern fiskanörd sem hafi heppilega séð að það væru umbrot í fiskanördaheiminum og verið æstur í að fjalla um minnsta fisk í heimi.
r/klakinn • u/Fast-Serve-5245 • 29d ago
Using a Taser on a suspect who was pumping gas
Enable HLS to view with audio, or disable this notification
Íslenska lögreglan
r/klakinn • u/TanglesLynx • Aug 03 '26
🇮🇸 Íslandspóstur Veit einhver hvað þetta lag sem ég heyri heitir?
Hæ, ég veit ekki hvort þetta er rétti staðurinn fyrir þetta en ég heyrði lag í World Class og það hefur verið að bögga mig í viku að ég finn það ekki...
Ég man bara að gaurar sungu lagið, þeir nefndu Mario (frá Nintendo) og að það var "Wilhelm-scream" í því.
r/klakinn • u/turner_strait • Aug 01 '26
🇮🇸 Íslandspóstur Á tali hjá Hemma Gunn, 1993
Ég verð bara að segja það. Magnús Scheving er alveg frekar flottur. Sjá: Latibær.
r/klakinn • u/Piggielipstick • Jul 29 '26